Blóma- og jógaferð í Leyningshóla

Blóma- og jógaferð í Leyningshóla 

Brottför kl. 13 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Anna Guðmundsdóttir og Ingileif Ástvaldsdóttir.
Ekið verður upp á hólabrúnina í mynni Villingadals og gengið þaðan eftir vegi og stígum um hólana. Fræðsla og umræður um trjágróður og á leiðinni skoðum við þau blóm sem á vegi okkar verða og gildi þeirra í náttúrunni. Þátttakendur nota skilningarvitin til að dýpka upplifun sína af náttúrunni. Gangan fer að mestu fram í kyrrð þar sem tækifæri er veitt til að rækta sál og líkama í fallegri náttúru Eyjafjarðar með núvitundar- og öndunaræfingum ásamt því að staldra við til að gera nokkrar yogastöður undir berum himni. Létt ganga og ferð við flestra hæfi.
Þátttaka ókeypis.

Skráning