Flateyjardalur

Flateyjardalur   

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. Það þarf að vera á fjórhjóladrifnum bílum s.s. jepplingum eða stærri bílum.
Safnast saman í bíla ef vill.
Fararstjórn: Hermann Gunnar Jónsson

Hætt hefur verið við ferðina á Kamb vegna þess að efst í fjallinu hafa skapast hættulegar aðstæður. Í staðinn verður farið á tvö fjöll á Flateyjardal, Þverárfjall sem er 791 m hátt og Mógilsdalskamb sem er 751 m hár. Aðgengileg leið á ljómandi útsýnisfjöll.

Ekið er að Ytra-Mógili þar sem gangan hefst. Gengið um gróið land og þægilega melhryggi og mela. Það eru ekki skriður en hugsanlega solítið klöngur á stuttum köflum. Fyrst er gengið á Þverárfjall og síðan á Mógilsdalskamb, nokkurs konar hringleið. Mögulega svolítill útúrdúr á milli fjallanna.
 

Vegalengd alls um 14 km. Heildargönguhækkun um 1100 m.

Verð: 5.200 / 6.900 kr. Innifalið: Fararstjórn.
Greitt er fyrir þessa ferð við brottför.

Skráning í ferð

 

skráning í ferð

 

 Búnaður

 

Erfiðar ferðir: Nokkuð langar dagleiðir, 6 - 8 klst. Gengið í fjalllendi og jafnvel lausum skriðum. Getur þurft að vaða erfiðar ár. Ef gist er þá er það oftast í húsum og þá þarf að bera svefnpoka.

ATH. Fararstjóri tekur fram ef annan búnað þarf

Nauðsynlegur búnaður er meðal annars:
Gönguskór sem henta utan slóða og veita góðan stuðning
Bakpoki (dagpoki) gott að hann sé með bakpokahlíf
Göngustafir ef vill
Sólgleraugu, sólarvörn og varasalvi, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
Höfuðljós ef búast má við að ganga í myrkri
Viðeigandi fatnaður, hlífðarföt, sokkar til skiptanna, húfa og vettlingar
Vaðskór ef gefið er upp að það þurfi að vaða
Sjúkragögn, hælsærisplástur, teygjubindi og verkjalyf og annað smálegt
Vatn/drykkir og nesti til dagsins (einnig göngunasl)
Hæfilegt magn af orkuríku nesti og drykkjum (eftir lengd, aðstæðum og fyrirkomulagi ferðar)
Alltaf gott að hafa í bakpokanum: Flugnanet, legghlífar, buff og léttir broddar, viðgerðasett (nál, tvinni, lítil skæri), klemmur
Kort, áttaviti, GPS tæki