Málmey: Saga, náttúra og menning

Málmey: Saga, náttúra og menning  

Brottför kl. 12 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Herdís Zophoníasdóttir
Ekið til Hofsóss þaðan sem siglt er út í Málmey með Drangey Tours. Fjölbreytt fuglalíf er í eynni, merkileg saga og náttúra. Gengið um eyna í um tvo tíma í fylgd staðkunnugs leiðsögumanns. Farið verður í útsýnissiglingu að Þórðarhöfða þar sem er stórkostlegt stuðlaberg og Drangey er einnig í sjónmáli. Ferðin tekur 7-8 tíma. Hámarksfjöldi í bátinn er 19 manns.
Verð: 20.000/22.000. Innifalið: Fararstjórn, sigling og leiðsögn.
Staðfestingargjald 4.000 kr. Þessa ferð þarf að greiða að fullu þremur dögum fyrir brottför.
Lágmarksfjöldi til að ferð verði farin: 10 manns.