Söguferð 2/raðganga: Bjargakrókur-Ófeigsstaðir í Kaldakinn

Raðganga 2: Bjargakrókur-Ófeigsstaðir í Kaldakinn

Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23, Akureyri.
Fararstjórn: Erla Sigurðardóttir og Ingvar Teitsson
Ekið að bænum Björgum í Kaldakinn og norður að sjónum í Bjargakrók, þar sem gangan hefst. Heimafólk á Björgum fræðir okkur um nánasta umhverfi og skriðurnar miklu sem féllu heim á tún á Björgum í október 2021. Síðan er gengið eftir innansveitarveginum suður Kaldakinn að kirkjustaðnum Þóroddsstað, en þar var Helga Sörensdóttir jarðsungin. Á leiðinni rifjum við upp vist Helgu á bæjum í Útkinn, svo sem á Syðri-Skál. Göngu dagsins lýkur á Ófeigsstöðum. Vegalengd: 17 km, lóðrétt hækkun, hverfandi lítil. Ath: Selflytja þarf bíla milli Bjarga og Ófeigsstaða. Áætlaður göngutími 5-6 klst.
Verð: 2.000/3.500 kr.

Þeim sem hentar betur að mæta beint á upphafsstað göngunnar (neðan við Ófeigsstaði þar sem sameinast verður í bíla. Lagt af stað þaðan kl. 10:00) er bent á að hafa samband við skrifstofu FFA varðandi greiðslu. Skrifstofan er opin virka daga kl. 14:00-17:00. Netfang: ffa@ffa.is / sími: 462 2720

SKRÁNING