- Skrifstofan
- Félagið
- Ferðir og viðburðir
- Hreyfiverkefni
- Þaulinn 2025
- Skálar
- Myndir
Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Safnast saman í bíla ef vill.
Fararstjórn: Ingvar Teitsson
Þátttaka ókeypis
Gangan hefst við bílastæðið neðan við Kaupang. Gengið að gömlu brúnni yfir Eyjafjarðará og meðfram bökkum Eyjafjarðarár. Gengið um eyðibýlið Kaupangsbakka og sagðar sögur af svæðinu. Þægilegum slóða fylgt meðfram ánni allt að brúnni við Hrafnagil. Á þessum tíma ættu að vera fallegir haustlitir hvarvetna. Selflytja þarf bíla milli Kaupangs og brúarinnar við Hrafnagil.
Vegalengd: 10 km. Gönguhækkun: Óveruleg.
Þann 20. september verður gönguferð á Flateyjardal, gengið á tvö fjöll þar með Hermanni Gunnari Jónssyni. Sjá nánar hér.