Næsta ferð 17. maí: Fuglaskoðunarferð í Eyjafirði

Fuglaskoðunarferð í Eyjafirði

Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Safnast saman í bíla ef vill.
Fararstjórn: Jón Magnússon og Sverrir Thorstensen

Árleg fuglaskoðunarferð FFA undir leiðsögn kunnáttumanna, nú sem oftar um Eyjafjörðinn þar sem reynt verður að slá fyrri met í tegundafjölda fundinna fugla. Þátttakendur fylgja fararstjórum á valda staði þar sem fuglalífið verður skoðað. Stefnt er að því að finna álftahreiður, skeiðönd, grafönd, flórgoða jafnvel gargönd og auðvitað fleiri tegundir.
Gott er að hafa góðan sjónauka með.

Við hvetjum félagsmenn til að ná í árbók FÍ 2025 sem að þessu sinni er: Fuglar og fuglastaðir

Hér er hægt að sjá meira um ferðina og skrá sig í hana