Næsta ferð: Böggvisstaðadalur-Grímubrekkur-Böggvisstaðadalur

Böggvisstaðadalur - Grímubrekkur - Böggvisstaðadalur skor skorskor

20. júlí. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.  
Fararstjóri: Una Þ. Sigurðardóttir. Verð: 3.500/2.000.  Innifalið: Fararstjórn.
Ekið til Dalvíkur og gengið þaðan fram Böggvisstaðadal og upp í Heiðarskarð á Reykjaheiði. Þaðan eru  gengnar fjallsbrúnir að Grímubrekkum og haldið niður Grímudal í Böggvisstaðadal. Afar falleg fjallsýn. Vegalengd 19-20 km. Mesta hæð 1000 m.
Í ferðum Ferðafélags Akureyrar þar sem sameinast er í bíla taka allir þátt í kostnaði með því að greiða bílstjóra hvers bíls fyrir sig.

Munið að skrá ykkur hér