Kerling / sjö tinda ferð -Biðlisti

Kerling / sjö tinda ferð 1538 m.

Brottför kl. 8 á einkabílum og með rútu frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Baldvin Stefánsson, Einar Bjarki Sigurjónsson og Christina Finke
Verð: 6.000/4.500. Innifalið: Fararstjórn.
Ekið að Finnastöðum og gengið þaðan á Kerlingu hæsta fjall í byggð á Íslandi og síðan norður eftir tindunum; Hverfanda (1320 m), Þríklökkum (1360 m), Bónda (1350 m), Litla Krumma, Stóra Krumma, Syðri-Súlu (1213 m) og Ytri-Súlu (1143 m). Gengið niður í Glerárdalinn þar sem ferðin endar. Vegalengd um 20 km. Gönguhækkun 1440 m. Æskilegt að hafa brodda meðferðis, þeir sem þá eiga. ATH. Takmarkaður fjöldi.

Skráning