Kynning á sumarleyfisferðum FFA 2024

Sumarleyfisferðir FFA 2024 verða kynntar sérstaklega í máli og myndum í húsnæði FFA, Strandgötu 23, kl. 20.00
Fararstjórar mæta á svæðið, segja frá og bjóða upp á spjall. Hressing eftir kynninguna.

Ferðir sem kynntar verða sérstaklega:
- Öskjuvegurinn, fimm daga trússferð. Verður farin 21.-25. júlí.
- Krepputunga - Sönghofsdalur. Verður farin 6.-7. júlí.
- Náttúruskoðun og sjálfsrækt á Glerárdal. Verður farin 16.-18. ágúst.
- Herðubreiðarlindir - Bræðrafell - Askja. Verður farin 14.-17. júlí.
- Helgarferð á Herðubreið. Verður farin 16.-18. ágúst.