Helgarferð á Herðubreið

Helgarferð á Herðubreið  

Brottför kl. 17 á einkabílum (góðum jeppum) frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Jónína Sveinbjörnsdóttir og Elfa Björk Jóhannsdóttir
Árleg ferð FFA á þjóðarfjallið Herðubreið (1682 m). Gist í Herðubreiðarlindum, í skála FFA eða í tjaldi. Nauðsynlegt er að vera á jeppum sem komast að uppgöngunni á Herðubreið. Hjálmur er nauðsynlegur öryggisbúnaður. Ef annar búnaður er nauðsynlegur lætur fararstjóri vita áður en ferð er farin.

1.d., föstudagur: Lagt af stað frá Akureyri kl. 17. Ekið í Herðubreiðarlindir, gist þar.

2.d., laugardagur: Gengið á Herðubreið. Gist aðra nótt í Herðubreiðarlindum.

3.d., sunnudagur: Haldið heim. Gert er ráð fyrir að koma til Akureyrar seinnipart dags.

Gönguhækkun 1000 m.
Verð: Í skála 19.500/24.500. Í tjaldi 14.500/16.500. Innifalið:
Gisting í tvær nætur og fararstjórn.
Greiða þarf staðfestingargjald vegna skráningar í þessa ferð kr. 5.000 í síðasta lagi 14 dögum eftir að krafa er stofnuð í netbanka.
Þessa ferð þarf að greiða að fullu fyrirfram, þremur dögum fyrir brottför. Krafa verður stofnuð í netbanka.

Búnaðarlisti

Biðlisti

Þjóðlendur Íslands.
Í tilefni af 80 ára afmæli lýðveldisins og þess að starfi óbyggðanefndar er að ljúka verður efnt til gönguferða um þjóðlendur í þeim tilgangi að kynna þær fyrir almenningi.
Samstarf verður við Ferðafélag Íslands og deildir FÍ í hverjum landsfjórðungi um gönguferðir og fræðslu um þjóðlendur.
Sérstök gönguferð af þessu tilefni verður á vegum FFA í Laugafell sumarið 2024, sú ferð er í undirbúningi og verður auglýst síðar.
Helgarferð á Herðubreið með FFA, fimm daga trússferð um Öskjuveginn og þriggja daga gönguferð frá Herðubreiðarlindum í Öskju falla undir að ganga um þjóðlendur.