10. júlí: Söguganga fyrsta ferð - yfirlitsferð

Söguganga um Helgu Sörensdóttur alþýðukonu í Þingeyjarsýslu. Fyrsta ferð - yfirlitsferð

Brottför kl. 12 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Erla Sigurðardóttir og Ingvar Teitsson
Fyrsti hluti raðgöngunnar verður yfirlits- og kynningarganga frá Ystafelli í Köldukinn, þar sem Jón Sigurðsson, skrásetjari ævisögu Helgu Sörensdóttur bjó. Gengið verður eftir slóða á Kinnarfellið suður á móts við Fellssel þar sem Helga bjó síðustu æviárin. Síðan verður gengið eftir melum og mólendi norður háfellið svo tekur gamall vegur við. Á leiðinni er horft yfir nánast allt „sögusviðið“ og komið niður að Hólsgerði en þar bjó Helga, fyrst með foreldrum sínum og síðar sem fullorðin kona. Frá Hólsgerði er gengið suður með þjóðveginum aftur í Ystafell. Á leiðinni verður sagt frá ævi Helgu og ævisöguritaranum Jóni Sigurðssyni.

Vegalengd um 12 km. Hækkun er um 200 metrar. Ekki þarf að gera ráð fyrir að vaða læki eða bleytur.
Áætlaður göngutími 4 klst.
Verð: 2.000/3.500 kr.

Ferðin átti að vera 3. júlí en var frestað um viku vegna veðurs.

Þeim sem hentar betur að mæta beint á upphafsstað göngunnar (Ystafell II, lagt af stað þaðan kl. 12.45) er bent á að hafa samband við skrifstofu FFA varðandi greiðslu. Skrifstofan er opin virka daga kl. 14:00-17:00. Netfang: ffa@ffa.is / sími: 462 2720

Skráning

Nánar um sögugöngurnar hér