Fréttatilkynning - viðbótarferðir

FFA ætlar enn að auka fjölbreytni ferðaáætlunar sumarsins og bæta við nokkrum spennandi ferðum, tveimur í júní og tveimur í júlí, sjá nánar hér.

Í júlí hefst afmælisraðganga FFA sem er frá Akureyri yfir í Mývatnssveit í júlí og ágúst, sjá nánar hér.

Frítt er fyrir börn að 18 ára aldri í dagsferðir og eru foreldrar, afar og ömmur hvött til að taka börn og unglinga með svo þau kynnist því að ganga sér til ánægju úti í íslenskri náttúru.

Við vekjum athygli á barna- og fjölskylduferðunum sem eru á áætlun í júní, júlí og ágúst. Frítt er í barna- og fjölskylduferðirnar.

Við vekjum líka athygli á tveimur toppaferðum fyrir fjallaskíðafólk en það er nýjung hjá FFA, sjá nánar hér.

Nánari upplýsingar um allar ferðir hér.