Komdu út og á fjöll með FFA haustið 2021

Skráning í hreyfiverkefnið Komdu út og á fjöll haustið 2021 er í fullum gangi.

Hreyfiverkefnið Komdu út og á fjöll er fyrir alla þá sem eru í þokkalegu gönguformi og miðast þyngdarstig og gönguhraði ferða við tvo til þrjá skó og haft er að leiðarljósi að „njóta en ekki þjóta“. Nýir þátttakendur eru velkomnir.

Farnar verða fimm gönguferðir frá ágúst og fram í september. 

Verkefnið hefst 12. ágúst, hópurinn hittist síðan samkvæmt auglýstu plani sem má sjá hér

Umsjónarmenn og fararstjórar eru Anna Sigrún Rafnsdóttir og Kristján Hreinsson.

Nánar um verkefnið sjá hér.

Verð:
16.500 kr. fyrir félaga í FFA og FÍ. Makar félagsmanna greiða sömu upphæð. Fyrir aðra er verðið 19.500 kr. Greitt er þegar lokað er fyrir skráningu.

Skráningu lýkur 10. ágúst og verkefnið hefst 12. ágúst og fer fram á ffa.is. Hægt er að beina fyrirspurnum til fararstjóra svo og á ffa@ffa.is eða hringja í síma 462 2720 á milli kl. 14 og 17. 

SKRÁNING