Kerling: Sjö tinda ferð

Kerling: Sjö tinda ferð  

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Bernard Gerritsma og Bóthildur Sveinsdóttir
Ekið á einkabílum að bílastæðinu við Súluveg þar sem nokkrir bílar eru skildir eftir. Ekið að Finnstöðum þaðan sem gengið er á Kerlingu 1538 m, hæsta fjall í byggð á Íslandi. Síðan er gengið norður eftir tindunum; Hverfanda 1320 m, Þríklökkum 1360 m, Bónda 1350 m, Litla Krumma, Stóra Krumma, Syðri-Súlu 1213 m, Ytri-Súlu 1143 m og niður í Glerárdal þar sem bílar þátttakenda bíða. Þetta er krefjandi ganga enda merkt fjögurra skóa ferð. Þátttakendur þurfa að vera í góðu gönguformi. Gangan getur tekið 12 klst. en það fer allt eftir hópnum, færð og veðri. Þátttakendur þurfa að klæða sig eftir veðri og taka með sér gott og orkuríkt nesti til dagsins og nóg af vatni þar sem ekki er víst að vatn sé að finna á leiðinni. Nauðsynlegt að hafa góða brodda og ísaxir meðferðis.
Vegalengd 20-21 km. Gönguhækkun alls 1800 m.
Verð: 6.000/8.000. Innifalið: fararstjórn.
Greitt er fyrir þessa ferð við brottför.

Búnaðarlisti

skráning