Fréttir

Nýi Lambi - unnið við frágang.

Laugardaginn 5. apríl 2014 var unnið við frágang skálans að innan og utan. Geretti voru sett á glugga og hurðir innan húss og listar á mótum panels og stafna inni. Þá voru settir blikklistar á mótum þaks og stafna utanhúss. Einnig var olíutankurinn festur upp. Smellið á MYNDIR og svo á \"Bygging Lamba\" til að sjá hvernig verkinu miðaði.

Vetrarferð í Ódáðahrauni

Jens Bachmann sendi nokkrar myndir

Opið hús á vegum ferðanefndar

Hamraborg. Gönguferð. Fjall mánaðarins Lambi2

Hamraborg. Gönguferð. Fjall mánaðarins

Nýi Lambi: ytri frágangi nær lokið

Laugardaginn 29. mars 2014 unnu sjö manns við smíði Nýja Lamba. Settur var kjölur á þakið, klæðningar á horn og fleira. Smellið á MYNDIR og svo á \"Bygging Lamba\" til að sjá hvernig verkinu miðaði.

Hamraborg. Gönguferð. Fjall mánaðarins

Ferðin á Hamraborg sem vera átti um síðustu helgi en var frestað verður laugardaginn 29.03.

Nýi-Lambi: klætt á stafna skálans

Laugardaginn 22. mars 2014 var haldið áfram vinnu við Nýja-Lamba. Klætt var á norður- og suðurstafna skálans og byrjað að klæða á vesturstafninn. Smellið á MYNDIR og svo á \"Bygging Lamba\" til að sjá myndir af framkvæmdinni.

Frestun ferðar á Hamraborg 23.03.2014

Ferðinni á fjall mánaðarins Hamraborg er frestað. Ákveðið verður í vikunni hvort reynt verður að fara um næstu helgi 29. eða 30. mars Fylgist með á heimasíðunni www.ffa.is Ferðanefndin

Frestað til sunnudags Hamraborg. Gönguferð (fjall mánaðarins)

Hamraborg. Gönguferð (fjall mánaðarins) Nauðsynlegur búnaður: Broddar 23. mars. Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.

Aðalfundur Ferðafélags Akureyrar 19. mars kl. 20:00

Munið aðalfund félagsins í kvöld 19. mars kl. 20:00 Um dagskrá sjá eldri frétt.