Fréttir

Draflastaðafjall - aflýst vegna veðurs

Vegna stormviðvaranar frá Veðurstofu hefur verið ákveðið að aflýsa ferðinni á Draflastaðafjall sem fara átti laugardaginn 2. desember

Næsta ferð: Draflastaðafjall

Draflastaðafjall, 734 m. Fjall mánaðarins. 2. desember. Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn. Gengið frá bílastæði efst á Víkurskarði og upp á fjallið, notið útsýnis og genginn góður hringur á fjallinu. Þetta er frekar létt ganga við flestra hæfi. Vegalengd 10 km. Hækkun 390 m.

Lokað í dag vegna veðurs

Skrifstofa Ferðafélags Akureyrar verður lokuð í dag, föstudag vegna veðurs og ófærðar

Næsta ferð: Þingmannahnjúkur - Fjall mánaðarins

Þingmannahnjúkur. Fjall mánaðarins 11. nóvember. Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.