Fréttir

Færeyjar á opnu húsi fimmtudaginn 3. mars

Fimmtudaginn 3. mars verður opið hús hjá FFA að Strandgötu 23. Jónas Helgason, menntaskólakennari segir frá landafræði og menningu Færeyja. Fyrirlesturinn hefst kl. 20. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Gil þorraaferð

Myndir og ferðasaga komnar á  myndasíðu 

Ferðakynning

Myndir

Staðarbyggðafjall

Myndir

12 - 13. febrúar. Þorraferð í Gil

Lagt er af stað við afleggjarann á Leirdalsheiði og er gengið út heiðina í skálann á Gili þar sem snæddur verður kjarngóður þorramatur og drukknar hinar dýrustu guðaveigar um kvöldið.
Daginn eftir er gengið til baka um Trölladal.
Fararstjóri: Frímann Guðmundsson
Verð: kr 4.000 / kr. 3.500
Innifalið: Fararstjórn, gisting.
Brottför frá FFA kl. 9.00

Ferðakynning 10 febrúar

10. febrúar. Ferðakynning  2011
Ferðir ársins kynntar í máli og myndum í Hömrum, litla salnum í Hofi, kl. 20.00.
Frímann Guðmundsson, formaður ferðanefndar kynnir.
Fyrirlesari: Páll Ásgeir Ásgeirsson og fjallar hann um Fjallabak og hinn “óeiginlega Laugaveg”  og ferðamöguleika þar.
Kynning á útivistarvörum frá 66°Norður, Sportveri og Skíðaþjónustunni.
Aðgangseyrir kr. 1.000. Hægt verður að kaupa kaffi og meðlæti á veitingastaðnum í Hofi.

Opnunartími skrifstofu

Skrifstofan verður opin á föstudögum fram á vor frá 17:00 - 19:00 þegar ferð er á dagskránni  næsta laugardag.

Stjórnin

Opið hús fimmtudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 3. febrúar kl. 20 verður opið hús hjá FFA. Að þessu sinni er ekki um skipulagða dagskrá að ræða en kaffi og meðlæti við höndina. Um að gera að nota tækifærið og setjast niður og spjalla. Jafnframt er minnt á ferðakynningu sem verður fimmtudaginn 10. febrúar.