Fréttir

Lambi. Skíðaferð

Botnaleið. Skíðaferð

Skíðastaðir – Þelamörk. Skíðaferð

Þorraferð í Botna. Skíðaferð

Ferðakynning

Ferðakynning FFA 2018

Ferðakynning FFA 2018 Þann 23. janúar kl. 20:00 verða ferðir ársins kynntar í máli og myndum . Kynnir verður Örn Þór Emilisson. Staðsetning: Verkmenntaskólinn á Akureyri, gengið inn að vestan. Erindi Fjallagarpurinn John Snorri segir í máli og myndum frá einstakri ævintýraferð sinni á K2 (8611 m á hæð) sem er einn allra hættulegasti og erfiðasti tindur jarðar. Kynning á útivistarvörum frá Horninu, Sportveri og Skíðaþjónustunni. Enginn aðgangseyrir – allir velkomnir

Bakkar Eyjafjarðarár - aflýst vegna snjóleysis

Ferðinni um bakka Eyjafjarðarár hefur verið aflýst vegna snjóleysis

Næsta ferð: Bakkar Eyjafjarðarár

Bakkar Eyjafjarðarár. Skíðaferð 13. janúar. Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. Fararstjóri: Anke Maria Steinke. Verð: 3.000/2.000. Innifalið: Fararstjórn. Gangan hefst við bílastæðið við gamla Leiruveginn að austan. Létt og þægileg gönguleið fyrir alla sem ekki langar að fara í bröttu brekkurnar. Upplögð fjölskylduferð. ATH: Fyrirvari á ferðinni er að mikið hefur hlánað síðustu daga og óvíst með skíðafæri um helgina. Því má eiga von á einhverjum breytingum á ferðatilhögun.

Almennur félagsfundur 4. janúar

Minnum á almennan félagsfund Ferðafélags Akureyrar sem verður á morgun, fimmtudaginn 4. janúar kl. 20:00 að Strandgötu 23. Ýmis félagsmál rædd, framkvæmdir á árinu, virkjunaráform í Dreka og fleira. Heitt á könnunni og allir velkomnir.

Nýársdagsganga 2018 í Vaðlareit

FFA efndi til nýársdagsgöngu þ. 01.01.18 í Vaðlareit. Smellið á MYNDIR til að fræðast um ferðina.