04.02.2008
Ferðafélag Akureyrar
9. febrúar. Hrafnagil - Súlumýrar. Skíðaferð 2 skór
02.02.2008
Ferðafélag Akureyrar
Nýlega gaf Ferðafélag Akureyrar út nýtt gönguleiðakort af Vaðlaheiði. Upphaflega gaf félagið út gönguleiðakort af
Vaðlaheiði fyrir um átta árum síðan. Nýja kortið er aukið og endurbætt, m.a. eru GPS punktar af öllum leiðunum á kortinu
sem eru alls sjö talsins. Akureyrarbær styrkti útgáfu kortsins.
02.02.2008
Ferðafélag Akureyrar
Ekki var farið upp á Súlumýrar eins og til stóð sökum éljagangs, en í staðinn farið inn bakka Eyjafjarðarár.
Fararstjóri var Grétar Grímsson og myndasmiður Frímann Guðmundsson.
Sjáið myndirnar
hér:
29.01.2008
Ferðafélag Akureyrar
Ketilhúsinu á Akureyri fimmtudaginn 31. janúar kl. 20.00
Roar Kvam, formaður ferðanefndar FFA, kynnir ferðir ársins í myndum og tali.
Haraldur Örn Ólafsson, pólfari m.m. verður með stórkostlega myndasýningu og frásögn um magnaðar ferðir sínar á Mont Blanc,
Kilimanjaro, Mont Everest og ekki síst, á Norðurpólinn.
Skíðaþjónustan og 66° Norður sýna útivistarvörur.
Aðgangseyrir kr 1.000 Kaffi og meðlæti innifalið.
28.12.2007
Ferðafélag Akureyrar
Nú er ferðaáætlun félagsins fyrir árið 2008 aðgengileg hér á heimasíðunni, sjá nánar hlekk hér
hægra megin á síðunni
28.11.2007
Ferðafélag Akureyrar
Óformlegur gönguhópur kemur saman alla mánudaga kl. 19:00. Ákveðið er í lok hverrar göngu hvar komið
verður saman næst.
Gengið er í nágreni Akureyrar, nú um þessar mundir er komið saman við Sundlaug
Akureyrar og gengið ca. eina klukkustund.
Allir velkomnir.
14.10.2007
Ferðafélag Akureyrar
Búið er að læsta skálum FFA í Herðubreiðarlindum og við Drekagil frá og með 14. okt. 2007
Hægt er að bóka gistingu og nálgast lykil af skálunum hjá Fjólu K Helgadóttur í síma 462 3812 á kvöldin. Einnig
má senda tölvupóst á netfang félagsins ffa@ffa.is
15.08.2007
Ferðafélag Akureyrar
17. – 19. ágúst. Heilagsdalur (3 skór)
Helgarferð með göngu á Ketildyngju og Bláfjall.
09.08.2007
Ferðafélag Akureyrar
Veðrið verður okkur ekki hliðhollt þessa helgina frekar en þá fyrri, svo ákveðið hefur verið að hætta við gönguna á
Herðubreið.
09.08.2007
Ferðafélag Akureyrar
Vegna lélegrar þátttöku hefur verið hætt við pílagrímsgönguna heim að Hólum. Minnum á Hólahátíðina
á vegum Biskupsstofu og áhugaverða dagskrá í tengslum við hana.