Sólarfjall - myndir komnar inn.
Gengið var frá
Litla-Árskógi upp Lækjardal á Sólarfjall (Krossahnjúk) í blíðskaparveðri. Í ferðinni voru 4 alsælir ferðalangar.
Gengið var svo niður að eyðibýlinu Kleif í Þorvaldsdal og með Þorvaldsdalsá að Litla Árskógi aftur.- Sjá myndir
Næstu ferðir Ferðafélags Akureyrar eru þriggja daga ferð um Fjörður. Svínárnes - Látur-
Þönglabakki - Gil. En svo er dagsferð laugardaginn 25. júlí. en þá er menningarferð til Hríseyjar.