Fréttir

17. ágúst. Kötlufjall, 989 m.

Gengið frá Syðri-Reistará, upp Reistarárskarð, þaðan til norðurs á Kötlufjall. Síðan er gengið niður svokallaðar Gvendarbrekkur að Stærra-Árskógi.
Fararstjóri: Frímann Guðmundsson.
Brottför kl. 8.00

16. ágúst. Kerling, 1538 m.

Sjö tinda ferð
Gengið á hæsta fjall Eyjafjarðarsýslu. Ekið að Finnastöðum í Eyjafjarðarsveit, gengið þaðan upp fjallið. Þaðan verður ferðinni tvískipt, sumir fara sömu leið til baka, en aðrir norður eftir tindum að Súlum og niður í Glerárdalinn þar sem ferðin endar.
Fararstjórar: Frímann Guðmundsson/Vignir Víkingsson.
Verð: Frítt / kr. 1.000
Brottför kl. 8.00

100 ára afmælisganga á Herðubreið

þann 13. ágúst í ár eru liðin 100 ár frá því að þýski vísindamaðurinn Hans Reck og Sigurður Sumarliðason gegnu fyrstir manna á Herðubreið. Ferðafélag Akureyrar verður með sérstaka afmælisgöngu í samstarfi við Ferðafélag Íslands. Skráning er þegar hafin í síma 4622720 hjá Ferðafélagi Akureyrar milli kl. 16 og 19 virka daga og einnig er hægt að skrá sig í tölvupósti ffa@ffa.is .

Fararstjóri: Ingvar Teitsson

Mæting í Þorsteinsskála í Herðubreiðarlindum 12. ágúst og lagt upp í göngu snemma morguns þann 13. ágúst.

10. ágúst. Meðfram Glerá

Gengið meðfram Glerá, frá öskuhaugum til ósa. Þetta er frábær og áhugaverð gönguferð í okkar nánasta umhverfi þar sem vaxa sjaldséðar jurtir.
Fararstjóri: Ingimar Eydal.
Verð: Frítt / kr. 1.000
Brottför kl. 8.00

9. 10. ágúst. Jeppaferð Norðan Dyngjufjalla

Hætt við ferðina vegna þátttökuleysis

9. ágúst. Bláskógarvegur

Ekið í Reykjahverfi og upp á heiðina að Sæluhúsmúla. Þaðan verður gengið hin forna leið Bláskógarvegur að býlinu Undirvegg í Kelduhverfi.
Fararstjóri: Sigurgeir Sigurðsson.
Verð: kr. 4.700 / kr. 5.700
Innifalið: Fararstjórn, akstur.
Brottför kl. 8.00

Ferð aflýst

Göngu um Bræðrafell og Hrúthálsa um verslunarmannahelgina 2.-4. ágúst hefur verið aflýst.

Breytt áætlun Bræðrafell-Hrúthálsar

Gangan um Bræðrafell og Hrúthálsa verður farin laugardaginn 2. ágúst og til mánudagsins 4. ágúst en ekki 1.-3. eins og áður var auglýst í Dagskránni og í ferðaáætluninni hér á síðu FFA.

Bræðrafell Hrúthálsar

2. – 4. ágúst. Bræðrafell – Hrúthálsar
Ekið verður upp í Herðubreiðarlindir og þaðan verður gengið sama dag upp í Bræðrafell og gist þar. Næsta dag verður gígurinn í Kollóttudyngju skoðaður og jarðmyndanir og jarðhiti í Hrúthálsum. Aftur verður gist í Bræðrafelli og morguninn eftir haldið heim á leið.
Fararstjóri: Frímann Guðmundsson.
Verð: kr. 3.400 / kr. 4.400
Innifalið: Fararstjórn, gisting.
Brottför kl. 8.00

Kleifar Hvanndalir Rauðskörð

26. – 27. júlí. Kleifar – Hvanndalir – Rauðskörð
Ekið er að Kleifum í Ólafsfirði. Fyrri daginn er gengið þaðan um Fossdal og í Hvanndali þar sem tjaldað er. Daginn eftir er gengið til baka um Víkurbyrðu og Rauðskörð að Kleifum.
Fararstjóri: Helga Guðnadóttir.
Verð: Frítt / kr. 1.000
Brottför kl. 8.00