09.07.2018
Árbækurnar eru komnar. Þeir sem hafa greitt árgjald geta komið og sótt á skrifstofuna.
Opið alla virka daga frá 14 til 17.
03.07.2018
Krepputunga. Gönguferð – tjaldferð
6.-7. júlí. Brottför kl. 16 á einkabílum (jeppum) frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórar: Ingvar Teitsson og Frímann Guðmundsson. Verð: 6.000/4.000 Innifalið: Fararstjórn.
Fólk sameinist í bíla og deilir kostnaði. Ekið um Möðrudal og síðan Kverkfjallaslóð inn í Arnardal og tjaldað. Þaðan ekið að Kreppubrú og bílum lagt. Þaðan gengið á söndum út í tunguna í átt að ármótunum, um Sönghofsdal og ummerki um gamla árfarvegi skoðuð. Áætluð göngulengd 18 km, 6 -7 tímar
29.06.2018
Fyrr í sumar auglýstum við lausa stöðu á skrifsofunni okkar frá og með 1. ágúst næstkomandi. Umsóknarfrestur rennur út á morgun, 30. júní og hvetjum við alla sem hafa áhuga á starfinu að senda inn umsókn.
27.06.2018
Reykjaheiði. 850 m
30. júní. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Farastjóri: Una Sigurðardóttir. Verð: 3.000/2.000. Innifalið: Fararstjórn
Ekið að Reykjum í Ólafsfirði. Gengið þaðan yfir Reykjaheiði niður í Böggvisstaðadal og til Dalvíkur. Þetta var hluti af leið landspóstsins milli Akureyrar og Siglufjarðar. Vegalengd 15-16 km. Gönguhækkun 710 m.
Munið að skrá ykkur